Sköpunarmiðstöðin
Staðsetning:
Bankastræti 1, 755 - Stöðvarfjörður
Rými:
Sköpunarmiðstöð
Leigutími:
Eftir samkomulagi
Tengiliður:
Una Sigurðardóttir
Netfang:
Sími:
865-6106 og 537-0711
Verð:
Eftir samkomulagi
Sköpunarmiðstöðin er staðsett í gamla hraðfrystihúsinu á Stöðvarfirði. Þar hefur farið fram mikil uppbygging síðustu ár og má þar finna fjölbreytta aðstöðu og verkstæði en þau eru; járnsmíðaverkstæði, trésmíðaverkstæði, leirverkstæði og prentverkstæði. Hljóðverið Stúdíó Síló er einnig til húsa í miðstöðinni sem og 115 m2 tónleikasalur sem nýtist til menningarviðburða og sem æfingaraðstaða fyrir tónlistarfólk og hljómsveitir.

Sköpunarmiðstöðin - Textíll
Aðstaða
Boðið er uppá þjónustu og aðstöðu fyrir lista- og tónlistarfólk, sviðslistafólk, rithöfunda, hönnuði og skapandi einstaklinga til listsköpunar, framleiðslu, vöruþróunar og vöruhönnunar. Í miðstöðinni er einnig rekin vinnustofudvöl listamanna og þar fara fram menningarviðburði og námskeið.
Hér má sjá aðstöðu til framleiðslu og vöruþróunar:
http://inhere.is/workshops-facilities/

Stúdíó Síló
Auk þess er í Sköpunarmiðstöðinni eitt fullkomnasta hljóðver landsins – Stúdíó Síló: