Herðubreið
Staðsetning:
Austurvegur 4, 710 - Seyðisfirði.
Rými:
4 sérstök vinnurými og 9 sérrými
Leigutími:
Útleiga hefst haustið 2022 og verður eftir samkomulagi
Tengiliður:
Sesselja Hlín Jónasardóttir og Celia Harrison
Netfang:
Sími:
770 2444
Verð:
Eftir samkomulagi
Vefsíða
Herðubreið er fjölnota menningar- og félagsheimili. Húsið hýsir ýmsar hátíðir, árlega viðburði eins og List í ljósi, LungA hátíð, leiksýningar, Haustroða ofl. Í húsinu er einnig eina bíóhúsið á Austurlandi, mötuneyti grunnskólans, LungA lýðskólinn og fleira.

Fjölnota rými
Aðstaða
Í vinnurýmunum fjórum eru skrifborð, stólar og aðgangur að interneti. Sér inngangur, eldhúsaðstaða og salerni. Hægt að fá afnot af prentara
Í húsinu eru einnig fjölbreytt rými til leigu, hátíðarsalur sem rúmar um 300 manns í sæti, bíósalur sem rúmar um 200 manns í sæti og hentar vel í ráðstefnur og fundi. Verkefnarými fyrir 15 manns, Gallerí fyrir 50 manns, kaffihús sem rúmar hátt í 100 manns. Í húsinu er einnig vottað eldhús, bar og bíó.
Starfsmenn hússins geta útvegað skjávarpa fyrir minni viðburði og fundi. Einnig er möguleiki á að ráða sérhæft starfsfólk á vegum Herðubreiðar fyrir viðburði; tæknimenn, ljósamenn, hljóðmenn, öryggisverði, sviðsstjóra, ræstingar og aðstoð við uppsetningu. Öll aukavinna sem ráðin er fyrir viðburði í Herðubreið verður rukkuð sem tímavinna. Veisluhaldarar og viðburðastjórum er þó heimilt að komið með sína eigin tæknimenn og starfskrafta.