Setrið – samvinnuhús
Staðsetning:
Fagradalsbraut 11, 700 Egilsstaðir
Rými:
Fullbúin skriborð í opnu rými ásamt kaffi- og fundaraðstöðu
Rekstaraðili:
Setrið
Tengiliður:
María Ósk Kristmundsdóttir
Sími:
835 7017
Netfang:
Leigutími:
Dagleiga, klippikort og mánaðaraðild
Setrið rekur skrifstofurými við Fagradalsbraut 11A á Egilsstöðum, sem fyrirtæki og einstaklingar geta nýtt sem vinnu- og fundaraðstöðu.
Markmið Setursins er að veita stafrænum flökkurum, einyrkjum og öðrum sem stunda fjarvinnu frá Egilsstöðum þægilegan, hvetjandi og eflandi vinnustað. Vinnustofan býður upp á skrifborð í opnu rými, tvö næðisrými, setustofu, kaffistofu og fundaraðstöðu. Hægt er að velja um skrifborð með einum eða tveimur skjáum en öll skrifborð koma með USB-C dokku, mús og lyklaborði. Fundarherbergið hentar vel fyrir 6-8 manns.