Uppfærist á 60 mínútna fresti
Uppfærist á 60 mínútna fresti
Eskifjörður er eins og sýnishorn af Austurlandi, en það má segja að í firðinum sé allt dregið saman sem er heillandi við landshlutann í heild. Samspil sögu og náttúru er töfrandi, en á Eskifirði kemstu íkynni við tignarleg fjöll, náttúrverndarsvæði, svartar strendur, söguna eins og tíminn hafi staðið í stað og áhugaverða jarðfræði.
Íbúafjöldi:
um 1.100
Póstnúmer:
735
Sveitarfélag:
Fjarðabyggð
Þegar þú nálgast Eskifjörð úr suðri hringar vegurinn sig um ræður Hólmatinds sem er stolt og prýði Eskfirðinga. Fjallið er 985 m hátt og gnæfir yfir fólkvanginn og friðlandið Hólmanes en þar má finna fjölbreytta göngustíga.
Í þorpinu má finna minjar um sögu fiskveiða og verslunar en Eskifjörður varð löggiltur verslunarstaður árið 1789. Heimsókn í Sjóminjasafn Austurlands setur söguna í samhengi og heimsókn í Randulffssjóhús veitir persónulega innsýn í svæðið. Sjóhúsið er gömul verbúð þar sem hægt er að sjá vistarverur sjómanna eins og þær voru 1890. Sjávarútvegssýningarnar og bragðið af staðbundnu sjávarfanginu á veitingastaðnum tvinnast saman og skapa einstaka stemmingu í húsinu. Á sumrin getur þú leigt bát og veiðarfæri og reynt fyrir þér við veiðar á firðinum. Sjávarútvegur og fiskvinnsla eru aðalatvinnuvegir íbúa Eskifjarðar og þar er eitt af stærri sjávarútvegsfyrirtækjum landsins, Eskja hf, auk þess sem vaxandi fiskeldi í firðinum er á vegum Laxa ehf.
Embætti sýslumanns Suður-Múlasýslu var flutt á Eskifjörð 1853 og í dag er Lögreglustjórinn á Austurlandi staðsettur þar.
Íbúar á Eskifirði eru um 1.100 talsins, í Grunnskóla Eskifjarðar eru um 150 nemendur og í leikskólanum um 60 nemendur. Tónlistarskóli er rekinn á Eskifirði og Reyðarfirði.
Ferðaþjónusta er nokkur og er hægt að finna gistingu og veitingastaði allt árið um kring. Afþreying er í boði, allt árið um kring og á veturna er sérstaklega gaman að heimsækja skíðasvæðið í Oddskarði, sem er beint fyrir ofan þéttbýlið á Eskifirði. Í Helgustaðanámu má finna silfurberg.
Mörg virk félagasamtök og sjálfboðaliðasamtök eru á Eskifirði;