Hallormsstaðaskógur, sem er að mestu náttúrulegur birkiskógur, er stærsti skógur landsins.
Skógardagurinn mikli er árleg hátíð þar sem m.a. er keppt um Íslandsmeistaratitil í skógarhöggi.
Vegalengd frá Egilsstöðum
28 km.
Dæmi um gönguleiðir
Trjásafnið, merktar gönguleiðir í skóginum
Menningarsetur/söfn
Trjásafnið
Vefsíða
Hallormsstaður er fyrrum prestssetur og kirkjustaður. Byggð hefur myndast á Hallormsstað í tengslum við skólahald, ferðaþjónustu og starfsemi Skógræktar ríkisins. Hallormsstaðarskógur er stærstur skóga á landinu en skógræktarstöð var stofnsett á Hallormsstað árið 1903 og skógurinn friðaður 1905. Þar er nú merkilegt trjásafn að finna. Ýmis þjónusta er á svæðinu og fjölbreyttir gistimöguleikar í nágrenninu.
Atlavík
Göngustígur liggur um trjásafnið og eru þar listsýningar og ýmsar uppákomur, meðal annars Bændadagurinn. Fjöldi merktra gönguleiða eru um skóginn og með ímyndunaraflið að vopni er hægt að lenda í ýmsum ævintýrum. Atlavík, sem er innarlega í skóginum við Lagarfljótið, er vinsæll áningarstaður ferðamanna.