Norð Austur

Nefnt eftir okkar ástkæru vindátt Norð-Austur. Á Norð Austur berum við einungis fram glænýjan og ferskan fisk veiddan af heimamönnum í ám og sjónum í kringum okkur. Með virðingu fyrir frábæru hráefni og japanskri hefð, berum við fram nútímalegt sushi og ljúffenga drykki.

Norð Austur nýtir sér afurðir nærsamfélagsins bæði í fisk- og grænmeti. Veitingastaðurinn hefur hlotið mikið lof út um allan heim og keppast virtir miðlar um að hrósa staðnum. Einstök upplifun í fallegu umhverfi sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.