Frystiklefinn

Frystiklefinn býður upp á fjölbreytta rétti þar sem áherslan er á staðbundið ferskt hráefni. Á matseðlinum finnur þú sígilda rétti í bland við hefðbundinn íslenskan mat, allt frá pizzum til sviðasultu. Andrúmsloftið er afslappað og frjálslegt. Við bjóðum upp á vinalega og persónulega þjónustu.

Frystiklefinn er veitingastaður í hinu margrómaða gistihúsi Blábjargar. Gistiheimilið Blábjörg býður upp á fjölbreitt úrval af gistingu frá herbergjum með sameiginlegri aðstöðu til lúxusíbúða fyrir alla fjölskylduna. Ef þig vantar hvíld og slökun, þá er Musterið, Spa&Wellness, fullkominn staður til að slaka á eftir skemmtilegan dag. Útsýnið úr heitu pottunum er stórkostlegt.