Móðir Jörð – Vallanesi

Hjá Móður Jörð í Vallanesi er rekið kaffihús og grænmetisveitingastaður frá maí – október en í Vallanesi fer fram lífræn ræktun á korni og grænmeti. Matseðillinn er árstíðabundinn og grundvallast á þeim hráefnum sem ræktunin gefur af sér á hverjum tíma.

Asparhúsið

Kaffihúsið er byggt úr íslenskri ösp sem var plantað í Vallanesi árið 1986 og ber nafnið Asparhúsið. Húsið var teiknað af Albínu Thordarson arkitekt en húsið er hið fyrsta þar sem notast var við íslenska ösp sem burðarefni í hús hér á landi.  Í Vallanesi  hefur verið plantað um 1 milljón trjáa og er viðurinn notaður til að skapa umgjörð og upplifun gesta með ýmsum hætti.  Í Asparhúsinu er einnig rekin sælkeraverslun með vörum Móður Jarðar.