Brekkan

Brekkan lætur lítið fyrir sér fara en þar er hægt að fá fínasta grill- og heimilismat. Á staðnum er einnig upplýsingamiðstöð ferðamanna og dagvöruverslun, með allar helstu nauðsynjavörur.

Á efri hæð hússins er skemmtileg gjafaverslun sem gaman er að skoða. Þá þykja ástarpungar staðarins með þeim allra bestu í landsfjórðungnum.