Askur Pizzeria

Askur Pizzeria býður upp á ljúffengar eldbakaðar pizzur með súrdeigsbotni. Við bjóðum þér að koma og setjast niður í afslöppuðu andrúmslofti í veitingasalnum okkar á Egilsstöðum.

Í sama húsi og Askur Pizzera má finna Ask Taproom.

Komdu í heimsókn og gæddu þér á bjórvalinu okkar frá Austra brugghúsi, okkar vinsælu kokteilum eða sestu niður og fáðu þér rjúkandi kaffibolla. Það er mikið líf og fjör á Ask Taproom. Tónleikar, pöbbkviss og boltinn í beinni. Og já, við erum með frítt wifi.