Skrif­stofu­stjóri Vopna­fjarð­ar­hrepps

Tækifæri á Vopnafirði!

Vopnafjarðarhreppur auglýsir eftir kröftugum skrifstofustjóra sem vill hafa áhrif á rekstur og stefnu metnaðarfulls sveitiarfélags.

Starfið felur í sér umsjón með stjórnsýsluframkvæmd sveitarfélagsins, veitingu þjónustu, eftirfylgni með gæðum þjónustu og starfsmannamálum.

Helstu verkefni eru rekstur og dagleg stjórnun skrifstofu sveitarfélagsins, mannauðsstjórnun, yfirsýn yfir verkefni sveitarfélagsins og samhæfing, greiningarvinna, stefnumótun, áætlanagerð og samningagerð. Skrifstofustjóri hefur umsjón með umbótaverkefnum á sviði stjórnsýslu, gæða- og tæknimála auk yfirumsjonar með gerð starfsáætlunar.

Hæfnikröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Rekstarreynsla og farsæl reynsla af stjórnun er æskileg
  • Reynsla af verkefnastjórnun, stefnumótun og innleiðingu og eftirfylgni breytinga
  • Þekking og/eða reynsla af stjórnsýslu er kostur
  • Mjög góð samskipta- og samvinnufærni
  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og drifkraftur
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvufærni

Næsti yfirmaður skrifstofustjóra er sveitarstjóri. Um fullt starf er að ræða. Laun eru samkvæmt kjarasamningum. Frekari upplýsignar veitir Sara Elísabet Svansdóttir, sveitarstjóri, [email protected] og einnig má hafa sambandi við skrifstofu Vopnafjarðarhrepps í gegnum netfangið, [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 28. nóvember.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðningu er lokið.