SKÓLASTJÓRI VIÐ LEIKSKÓLANN EYRARVELLI

Staða skólastjóra við leikskólann Eyrarvelli á Norðfirði í sveitarfélaginu Fjarðabyggð er laus til umsóknar.  Leitað er að kraftmiklum og lausnamiðuðum leiðtoga sem er tilbúinn að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í eflingu skólasamfélagsins í Fjarðabyggð.

 Helstu verkefni: 

  • Ábyrgð á rekstri skólans og þróunarvinnu
  • Fagleg forysta, dagleg stjórnun og samhæfing  starfskrafta skólans
  • Víðtækt samstarf við stofnanir, heimili og samfélag

Menntun og hæfniskröfur:           

  • Umsækjandi skal hafa leyfisbréf til kennslu í leikskóla
  • Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er æskileg
  • Viðbótarmenntun í stjórnun er æskileg
  • Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði

Skólastjóri skal hafa metnaðarfulla framtíðarsýn í skólamálum og vera tilbúinn að leiða faglegt og félagslegt starf innan skólans og stuðla að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins í Fjarðabyggð.

Eyrarvellir eru 6 deilda leikskóli á Norðfirði og nemendur eru um 100. Leikskólinn er staðsettur í næsta nágrenni við grunn- og tónlistarskóla staðarins, bókasafn og íþróttahús.  Í skólanum ríkir góður starfandi og gott samstarf er við aðra skóla í Fjarðabyggð. Öflugt foreldrafélag styður þétt við skólastarfið. Leikskólinn nýtir uppeldisaðferðirnar Uppeldi til ábyrgðar og ART og tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.  Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans; www.leikskolinn.is/eyrarvellir/

Umsóknir og umsóknarfrestur       

Staðan er laus frá 1. ágúst 2022. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.

Umsóknarfrestur er til 29. maí 2022.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðbyggðar starf.fjardabyggd.is með því að smella hér