N1 Egilsstaðir óskar eftir kraftmiklum og þjónustulunduðum liðsfélögum til sumarstarfa

N1 Egilsstaðir óskar eftir kraftmiklum og þjónustulunduðum
liðsfélögum til sumarstarfa. Þjónustustöðin okkar er fjörugur
vinnustaður og iðar af mannlífi frá morgni til kvölds. Um er að ræða
starfsfólk í almenna afgreiðslu, eldhús, útiþjónustu og vaktstjóra.

Helstu verkefni
• Almenn afgreiðsla og þjónusta við
viðskiptavini
• Önnur tilfallandi verkefni á stöðinni
Hæfniskröfur
• Samskiptafærni og þjónustulund
• Reynsla af störfum í verslun og
þjónustu er kostur.

Umsækjendur þurfa að vera liprir í samskiptum og eiga auðvelt með að vinna í hóp.
Nánari upplýsingar veitir Brynja Rut Borgarsdóttir, verslunarstjóri
í síma 440 1450.
Áhugasamir sæki um á www.n1.is – merkt Egilsstaðir.
Við hvetjum bæði kyn til að sækja um
auglýst störf hjá fyrirtækinu.