Lögreglumaður – Djúpivogur

Lögreglumaður. 

Lögreglustjórinn á Austurlandi auglýsir lausa til umsóknar stöðu lögreglumanns með starfsstöð á Djúpavogi.

Umsóknarfrestur er til og með  28. febrúar 2020.

Miðað er við að lögreglustjóri setji í stöðuna til reynslu í 6 mánuði frá og með 1. apríl 2020, með skipun í huga að reynslutíma loknum.

Ráðningarkjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Landssambands lögreglumanna.  Starfshlutfall er 100%. Um er að ræða dagvinnu með bakvaktarskyldu.

Um verksvið og ábyrgð lögreglumanns er vísað til 11. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfs-stig innan lögreglu.

Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Vakin er athygli á að heimilt er að ráða ófagmenntað fólk til tímabundinna afleysingastarfa, ef ekki sækja um fagmenntaðir einstaklingar. Góð þekking á lögreglukerfinu (LÖKE) æskileg, sem og önnur tölvukunnátta, þá er tungumálakunnátta kostur. Færni í mannlegum samskiptum, þjónustulipurð, góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í starfi, nákvæmni í vinnubrögðum og hæfni til að starfa í hóp eru nauðsynlegir eiginleikar. Góð staðarþekking og aukin menntun sem nýtist í starfi er kostur.

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem rýrt getur það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta.  Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá eða málaskrá lögreglu, sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.
Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til þess að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn, í síma 444 0635.

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun liggur fyrir. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum. Einnig er hægt að nálgast þau á lögregluvefnum, www.logreglan.is, undir liðnum eyðublöð.

Umsóknum ásamt upplýsingum um  menntun og starfsferil, ásamt ljósriti af prófskírteinum og öðrum gögnum skal skila til lögreglustjórans á Austurlandi, Strandgötu 52, 735 Eskifjörður eða sendar á netfangið [email protected]
Umsóknir, sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina.  Öllum umsóknum verður svarað, þegar ákvörðun liggur fyrir.

Lögreglustjórinn á Austurlandi,
Inger L. Jónsdóttir.