LEIKSKÓLINN KÆRIBÆR AUGLÝSIR EFTIR LEIKSKÓLAKENNARA EÐA STARFSMANNI

Leikskólinn er þriggja deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Unnið er eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Um er að ræða 100% starf.  Umsækjendur þurfa að geta hafið störf 3. janúar 2022

 Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun æskileg
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi

Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til 15. desember 2021.

Starfslýsing.

Sótt er um starfið á ráðningarvef sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar gefur Ásta Eggertsdóttir, leikskólastýra í síma 475-9055 eða [email protected]  eða Guðný Elísdóttir aðstoðarleikskólastjóri í eða [email protected]