Laust starf launafulltrúa á fjármálasviði Fljótsdalshéraðs

Um er að ræða:
Starf launafulltrúa 100% stöðugildi.
Leitað er að einstaklingi í framtíðarstarf, hefur til að bera drifkraft og frumkvæði og finnst
skemmtilegt að vinna með öðru fólki. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf eigi seinna en 1. janúar 2020.

Helstu verkefni eru:
• Yfirumsjón með skráningu, vinnslu og frágangi launaútborgana.
• Samstarf við stjórnendur sveitarfélagsins og forstöðumenn auk þess
að eiga samskipti við annað starfsfólk.
• Skýrslugerð og frágangur skilagreina vegna launa.
• Þátttaka í ársuppgjörum og fjárhagsáætlunarvinnu

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun á sviði fjármála og starfsmannamála æskileg.
• Þekking og reynsla úr umhverfi launa- og fjárhagskerfa mikilvæg.
• Samskipta- og tjáskiptahæfileikar, metnaður og frumkvæði

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsingar veitir fjármálastjóri, sími 470 0700 eða [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 18. september 2019.
Umsókn merkt Launafulltrúi umsókn berist á skrifstofu Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir eða á netfangið [email protected]

Lyngási 12, 700 Egilsstaðir, S: 4 700700
[email protected], fljotsdalsherad.is