Forstöðumaður við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík

Forstöðumaður við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík

Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns, sem jafnframt er starf akademísks sérfræðings, við nýtt Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík.

Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands hyggst koma á fót Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Breiðdalsvík á grunni starfsemi Breiðdalsseturs ses. Rannsóknasetrinu er einkum ætlað að sinna rannsóknum á sviði jarðfræði og málvísinda. Aðsetur þess verður í Gamla Kaupfélaginu.

Forstöðumaðurinn verður starfsmaður Háskóla Íslands en hefur starfsaðstöðu við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík. Starfsstöð setursins er á Breiðdalsvík og er gert ráð fyrir að forstöðumaðurinn gegni starfi sínu þaðan. Búseta á svæðinu er skilyrði. Miðað er við að tengsl verði við starfsemi og verkefni Jarðvísindadeildar Háskóla Íslands og Jarðvísindastofnunar Háskólans eftir því sem forstöðumaðurinn og starfsmenn koma sér saman um.

Helstu verkefni og ábyrgð
Auk sjálfstæðra rannsókna hefur forstöðumaður umsjón með starfsemi setursins, fjármálum þess og daglegum rektsri. Hann skipuleggur rannsóknir og samstarfsverkefni, hefur með höndum áætlunargerð og stýrir sókn í sjóði. Hann þarf að geta tekið að sér leiðbeiningu háskólanema í framhaldsnámi og aðra kennslu á háskólastigi.

Innan Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands eru starfrækt 10 sjálfstæð rannsóknasetur víða um land. Markmið stofnunarinnar er m.a. að skapa aðstöðu til rannsókna á landsbyggðinni og vera vettvangur samstarfsverkefna háskólans við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga á landsbyggðinni. Rannsóknir eru meginviðfangsefni rannsóknasetranna og eru viðfangsefnin fjölbreytt og tengjast nærumhverfi setranna með einhverjum hætti. Lögð er rík áhersla á árangur í starfi, áhrif og gæði rannsókna og hagnýtingu rannsóknaniðurstaðna.

Hæfnikröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi á sviði jarðvísinda og hafa stundað sjálfstæðar rannsóknir á því sviði. Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, lipurð í mannlegum samskiptum, gott vald á ensku og íslensku er nauðsyn. Reynsla af alþjóðasamstarfi sem og reynsla af þverfræðilegu samstarfi er æskileg. Þá er reynsla af sókn í innlenda sem erlenda rannsóknasjóði kostur.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Um fullt starf er að ræða og verður ráðið í starfið til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum, sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um Háskóla nr. 85/2008 og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009. Sérstök nefnd sem rektor skipar annast mat og forgangsröðun umsókna.

Umsækjendur skulu láta rannsóknaáætlun til fimm ára fylgja umsókn sinni, þar sem koma skal fram hvernig rannsóknir umsækjanda tengjast Breiðdalsvík og nærumhverfi þess. Umsækjendur láti einnig fylgja vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið. Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Umsókn og umsóknargögnum sem ekki er skilað rafrænt skal skila í tvíriti til Vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna_haskola_islands.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.10.2020

Nánari upplýsingar veitir
Sæunn Stefánsdóttir – 525 4041