Eskja óskar eftir að ráða Baadermann

Baadermaður í viðhaldsteymi

 

Eskja óskar eftir að ráða Baadermann til að sjá um viðhald á baadervélum í uppsjávarfrystihúsi félagsins á Eskifirði.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun í vélvirkjun, rafvirkjun eða sambærileg menntun er kostur.
  • Reynsla af vinnu í frystihúsi eða á frystiskipi er kostur.
  • Þekking á Baadervélar er kostur.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og til að starfa í teymi.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Fyrirtækið / stofnunin

Eskja hf. er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og meginstarfsemi þess eru veiðar og vinnsla á uppsjávarfiski. Félagið gerir út þrjú uppsjávarveiðiskip og rekur á Eskifirði eina fullkomnustu uppsjávarvinnslu á Íslandi. Í uppsjávarfrystihúsi og mjöl og lýsisvinnslu félagsins framleiðir Eskja á sjálfbæran hátt hágæða afurðir úr uppsjávarfiski. Um 90 manns vinna hjá félaginu og höfuðstöðvar þess eru á Eskifirði.

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferlisskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 24. febrúar 2020