Eskja óskar eftir að ráða almennan starfsmann
Almennur starfsmaður í fiskimjölsverksmiðju
Eskja óskar eftir að ráða almennan starfsmann til að sinna fjölbreyttum störfum í fiskimjölsverksmiðju félagsins á Eskifirði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af störfum í verksmiðju er kostur.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni til að starfa í teymi.
- Vinnusemi og dugnaður.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Fyrirtækið / stofnunin
Eskja hf. er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og meginstarfsemi þess eru veiðar og vinnsla á uppsjávarfiski. Félagið gerir út þrjú uppsjávarveiðiskip og rekur á Eskifirði eina fullkomnustu uppsjávarvinnslu á Íslandi. Í uppsjávarfrystihúsi og mjöl og lýsisvinnslu félagsins framleiðir Eskja á sjálfbæran hátt hágæða afurðir úr uppsjávarfiski. Um 90 manns vinna hjá félaginu og höfuðstöðvar þess eru á Eskifirði.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferlisskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 24. febrúar 2020