Vínbúðin Neskaupstað óskar eftir starfsmanni

Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi sem er tilbúinn að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.

Hæfniskröfur
• Jákvæðni og rík þjónustulund
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Almenn tölvukunnátta
• Reynsla af verslunarstörfum er kostur
Helstu verkefni og ábyrgð
• Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
• Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
• Umhirða búðar

Starfshlutfall er 68,8%.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og sakavottorðs er krafist.
Umsóknarfrestur er til og með 24. júní nk. Umsóknir óskast fylltar út á vinbudin.is

Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ.
Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.
Nánari upplýsingar veita: Þorlákur Ægir Ágústsson – [email protected], 477 1890 og Thelma Kristín Snorradóttir – [email protected], 560 7700

ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna ÁTVR er að vera eitt af fremstu þjónustufyrirtækjum landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.

Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé öruggur, heilsueflandi og
skemmtilegur þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.