Staða varaslökkviliðsstjóra Brunavarna á Austurlandi

Laus er til umsóknar staða varaslökkviliðsstjóra Brunavarna á Austurlandi

Brunavarnir á Austurlandi er samlag 6 sveitarfélaga um þjálfun og menntun slökkviliðsmanna.

Starfsvæðið nær til Vopnafjarðar, Borgarfjarðar eystra, Seyðisfjarðar, Djúpavogs, Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps. Varaslökkviliðsstjóri er staðgengill slökkviliðsstjóra og ber ábyrgð á faglegri starfsemi Brunavarna á Austurlandi í samvinnu við slökkviliðsstjóra. Hefur umsjón með og tekur þátt í þjálfun slökkviliða á starfssvæði Brunavarna á Austurlandi. Sinnir eldvarnaeftirliti, úttektum og yfirferð uppdrátta í samvinnu við slökkviliðsstjóra. Sinnir ýmsum verkefnum sem tengjast fræðslu og ráðgjöf til stofnana, fyrirtækja og einstaklinga.

Menntunar- og hæfniskröfur
– Umsækjendur skulu uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 792/2001 um menntun, réttindi og skyldur
slökkviliðsmanna og laga nr. 75/2000 um brunavarnir.
– Vera með löggildingu sem slökkviliðsmaður og hafa starfað a.m.k. í eitt ár í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður
– Hafa aukin ökuréttindi
– Hafa leiðtoga- og stjórnunarhæfni, auk skipulagshæfni, sveigjanleika og vilja til að tileinka sér nýjungar. Umsækjendur þurfa að geta starfað undir álagi.
– Góð almenn tölvukunnátta. Góð íslensku- og enskukunnátta æskileg.
Starfsstöð og skrifstofa varaslökkviliðsstjóra er á Egilsstöðum.

Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2019. Umsóknum skal skilað rafrænt til Baldurs Pálssonar, slökkviliðsstjóra Brunavarna á Austurlandi, [email protected].

Upplýsingar um starfið gefa Baldur Pálsson slökkviliðsstjóri, [email protected] eða í s. 861 2164 og Haraldur Geir Eðvaldsson varaslökkviliðsstjóri, [email protected] eða í s. 869 4361.