FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR – SKÓLALIÐI Í GRUNNSKÓLA FÁSKRÚÐSFJARÐAR
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar auglýsir eftir skólaliða frá 1. október 2017. Í skólanum eru 95 nemendur í 1.-10. bekk. Starf skólaliða felst m.a. í ræstingu, leiðsögn og umsjón með börnum í leik og starfi.
Reynsla og æskileg hæfni:
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Sveigjanleiki og jákvætt viðhorf
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Ánægja af starfi með börnum
- Snyrtimennska, dugnaður og ábyrgðarkennd
- Kostur er að viðkomandi hafi reynslu af starfi með börnum
Um er að ræða u.þ.b. 80% starfshlutfall. Vinnurtími er frá 9:30- 16:00
Umsóknarfrestur er til og með 26. september 2017.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eygló Aðalsteinsdóttir skólastjóri í síma 475-9020. Hægt er að senda tölvupóst á: [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Sótt er um starfið rafrænt á vefgátt Fjarðabyggðar. Gott er að hafa öll gögn tilbúin þegar sótt er um.
Smelltu hér til að sækja um starf.
Einnig er tekið við umsóknum í þjónustugáttum bókasafna og á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð, merktum: Skólaliði í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar.
Hægt er að sækja um starfið á heimasíðu leikskólans http://kaerib.leikskolinn.is/