Spennandi tækifæri á Austurlandi – Bíladeild
Tanni Travel er rótgróið alhliða ferðaþjónustufyrirtæki fyrir innlenda og erlenda ferðamenn, staðsett á Austurlandi.
Fyrirtækið á 16 hópferðabíla af öllum stærðum og gerðum.
Við erum samhentur hópur starfsmanna með mikinn metnað og viljum bæta við okkur kraftmiklum, hugmyndaríkum, jákvæðum og samviskusömum liðsmönnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og viðhald bíla
- Verkefnamönnun
- Samskipti við samstarfaðila
- Þróun ferla og verklags
- Tilboðs- og áætlanagerð
- Annað tilfallandi
Við leitum að starfsmanni sem býr yfir
- Starfsreynslu sem nýtist í starfi
- Góðri íslensku- og enskukunnáttu í bæði rituðu og töluðu máli
- Góðri tölvukunnáttu, Word og Excel skilyrði
- Sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum
- Góðum samskipta- og skipulagshæfileikum
- Getur unnið undir álagi og í skorpum
Kostur, en ekki nauðsynlegt
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af stjórunun
- Þekking á Austurlandi
- Aukin ökuréttindi
Um er að ræða 100% starf.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 6. desember 2022.
Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri, Díana Mjöll, á netfanginu [email protected]
Áhugasamir sendi inn kynningarbréf ásamt ferilskrá á sama netfang