STARFSMAÐUR Á SKÍÐASVÆÐINU Í ODDSSKARÐI

Skíðamiðstöðin Oddskarði óskar eftir að ráða til sín starfsfólk fyrir skíðaveturinn 2022-2023.  Í boði eru 60% til 80% störf. Einnig eru í boði störf í tímavinnu. Vinna fer fram seinnipart dags og um helgar.

Starfslýsing:

  • Lyftuvarsla, uppsetning í byrjun dags og frágangur í lok dags.
  • Skálavarsla, gera klárt fyrir opnun innandyra og aðstoða í skíðaleigu- og afreiðslu.
  • Aðstoða gesti við að komast í og úr skíðalyftum ásamt stjórnun á skíðalyftum.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

 Hæfniskröfur:

  • Umsækjendur þurfa að hafa góða þjónustulund.
  • Geta unnið sjálfstætt og undir álagi.
  • Hafa gaman af útiveru.
  • Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði í starfi og sé tilbúin að takast á við skemmtilegt starf.
  • Gerð er krafa um gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
  • Bílpróf er nauðsynlegt.

Starfslýsingng: Starfsmaður skíðaskála

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til 11. desember 2022

Nánari upplýsingar um starfið veitir Magnús Árni Gunnarsson verkefnastjóri, í síma 895-9005 eða í tölvupósti [email protected]

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér