Áætlanagerð og gagnaskráning Egilsstöðum
RARIK ohf. óskar eftir að ráða öflugan einstakling á starfsstöð fyrirtækisins á Egilsstöðum. Í starfinu felst gerð verkáætlana vegna framkvæmda fyrirtækisins í dreifikerfinu á Austurlandi ásamt skráningu og teikningu í landsupplýsingakerfi.
Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gerð verkáætlana
- Skráning og teikning í landsupplýsingakerfi
- Hönnun dreifikerfa
- Yfirferð og ivðhald tæknigagna
- Vöktun dreifikerfis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á rafmagnssviði
- Þekking á rekstri dreifikerfa kostur
- Hæfni í mannlegum samkiptum
- Frumkvæði og metnaður
- Góð tölvukunnátta
- Þekking á verkskráningu og landsupplýsingakerfum kostur
Nánari upplýsingar veita Örvar Ármansson, deildarstjóri rekstarsviðs á Austurlandi og starfsmannastjóri RARIK í síma 528 9000.
RARIK ofh. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa raforku auk þess að afla, dreifa og annast sölu á heitu vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200 á 20 starfsstöðvum sem eru dreifðar vítt og breitt um landið.
Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2022 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Áætlanagerð og gagnaskráning Egilsstöðum | RARIK ohf. | Fullt starf Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)