Umsjónarkennari
Seyðisfjarðaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á yngsta stigi í 100% stöðu frá og með 1. ágúst næstkomandi. Um framtíðarstarf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda samkvæmt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla í samráði við skólastjóra og aðra kennara með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
- Fylgjast með velferð nemenda, hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
- Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun
- Færni í mannlegum samskiptum
- Skipulagshæfni
- Frumkvæði í starfi
- Faglegur metnaður
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og Kennarasambands Íslands.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Hrund Óladóttir skólastjóri í síma 866 8302 eða á netfanginu [email protected]
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Umsóknarfrestur er til 30. maí 2022 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Umsjónarkennari. | Seyðisfjarðarskóli | Fullt starf Seyðisfjörður | Alfreð (alfred.is)