Sjúkraliði við heilsugæslu Fjarðabyggðar
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða í heilsugæslu Fjarðabyggðar. Starfshlutfall er 70% eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn störf sjúkraliða á heilsugæslu/ í heimahjúkrun. Í starfinu felst vaktavinna bæði á heilsugæslunni í Fjarðabyggð og tilfallandi afleysing í heimahjúkrun í Neskaupstað.
Hæfniskröfur
Sjúkraliðaréttindi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Gild almenn ökuréttindi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 70%
Umsóknarfrestur er til og með 03.05.2021
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Pétursdóttir – [email protected] – 470-1422 & 618-1904
Bryndís Guðmundsdóttir – [email protected] – 866-2671