Frístundaleiðbeinanda við félagsmiðstöðina Atóm í Neskaupstað
Laust er starf frístundaleiðbeinanda við félagsmiðstöðina Atóm í Neskaupstað
Laus er til umsóknar staða frístundaleiðbeinanda við Félagsmiðstöðina Atóm í Neskaupstað. Um er að ræða tímavinnustarf sem fer fram aðallega seinnipart dags og á kvöldin.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
- -hafi menntun sem nýtist í starfi
- -reynslu og áhuga á starfi með börnum og ungmennum
- -færni í samskiptum
Starfslýsing frístundaleiðbeinanda í félagsmiðstöð.pdf
Umsækjendur skulu vera með hreint sakavottorð. Laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson, íþrótta- og frístundastjóri. Sími: 893-9098. Netfang: [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2020.