Staða safnstjóra laus til umsóknar

Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum auglýsir stöðu safnstjóra lausa til umsóknar. Við leitum að drífandi, sjálfstæðum, hugmyndaríkum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á sögu og menningararfi svæðisins.

Helstu verkefni:

Safnstjóri ber ábyrgð á faglegu starfi safnsins (s.s. söfnun, skráningu, varðveislu, rannsóknum, miðlun og fræðslu), daglegri starfsemi, rekstri, starfsmannamálum og markaðs- og kynningarmálum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði safnafræði, sagnfræði, þjóðfræði eða menningarmiðlunar.
  • Reynsla af safnastarfi er kostur.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði og þekking á fleiri tungumálum er kostur.
  • Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði.
  • Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði.

Umsóknarfrestur er til og með 24. júlí 2024
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2024.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknir skulu sendar á netfangið [email protected] og þeim skal fylgja starfsferilsskrá, upplýsingar um menntun og kynningarbréf sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Elsa Guðný Björgvinsdóttir, [email protected] og 867-3225