Sjúkraliði – Neskaupstaður
Sjúkraliði – Neskaupstaður – Sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða á sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 80 – 100% eða samkvæmt samkomulagi. Vaktavinna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn sjúkraliðastörf á hand- og lyflækningadeild.
Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland.
Hæfnikröfur
Íslenskt starfsleyfi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.
Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.10.2020
Nánari upplýsingar veitir
Þórhalla Ágústsdóttir – [email protected] – 470-1453
Sigríður Kristinsdóttir – [email protected] – 471-1453 & 864-0239
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Nesk. Sjúkradeild
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður