Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs

Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs (MMF) var stofnuð árið 2005 og er til húsa í Sláturhúsinu við Kaupvang.

Um Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs

Hlutverk MMF er að ýta undir skapandi starfsemi, hvetja til þátttöku almennings og efla lista- og menningarstarf á Austurlandi. Menningarmiðstöðin er lykilstofnun við framkvæmd menningarstefnu sveitarfélagsins og leggur sérstaka áherslu á sviðslistir (performing arts). Önnur áhersla miðstöðvarinnar er lista og menningaruppeldi barna og ungmenna og því er áhersla á að sem flest verkefni  hafi fræðslugildi auk hins listræna og menningarlega gildis.

Áherslur

Þó áhersla sé lögð á sviðslistir þá sinnir MMF / Sláturhús einnig öðrum listgreinum, meðal annars með myndlistarsýningum, kvikmyndasýningum, tónleikum auk annarra menningarviðburða.

Í Sláturhúsinu er einnig gestaíbúð og vinnuaðstaða fyrir listafólk.