Einingahús og listræn tjáning
Laugardaginn 26. september hefst haustsýning Skaftfells sem ber heitið PREFAB / FORSMÍÐ – Einingahús og listræn tjáning frá einum aldamótum til annarra. Sýningin er afar athyglisverð og enginn sem hefur áhuga á húsasögu og áhrifum byggingarlistar á líf okkar ætti að láta hana fram hjá sér fara.
Haustsýningar Skaftfells – myndlistarmiðstööðvar Austurlands – vekja ávallt athygli og opnun þeirra er einn af hápunktum menningarlífsins á Austurlandi. Að þessu sinni verður áhersla lögð á byggingarlist en sýningin kallast PREFAB / FORSMÍÐ, undirtitillinn Einingahús og listræn tjáning frá einum aldamótum til annarra.
Þrjú dæmi um forsmíðuð einingahús
Einingahús, þ.e. byggingar úr einingum sem eru forsmíðaðar í verksmiðju og svo fluttar og settar saman á endanlegum stað eru grundvallandi fyrir þróun byggðar í Seyðisfjarðarkaupstað. Á sýningunni PREFAB / FORSMÍÐ verða tekin fyrir þrjú dæmi um forsmíðuð einingahús með það að markmiði að vekja athygli á áhrif byggingarlistar á líf okkar, og þá sérstaklega hvaða hlut einingahús geta átt í framtíð manngerðs umhverfis.
Einingahúsin sem fjallað er um á sýningunni eru frá seinni hluta 19. aldar til okkar daga. Hvert verk er einkennandi fyrir fagurfræðilega nálgun hvers tíma. Elsta verkið er Stefánshús, svokallað katalóghús í sveitserstíl, íbúðarhús sem hannað var og smíðað í verksmiðju í Noregi, tekið niður og sett upp aftur á Seyðisfirði 1899. Annað verkið er Le Cabanon, sumarbústaður frá árinu 1951 sem módernista arkitektinn Le Corbusier (1887-1965) hannaði fyrir sjálfan sig. Bústaðurinn var byggður á smíðaverkstæði á Korsíku og var fluttur þaðan í einingum sem settar voru upp á lóðinni að Roquebrune-Cap-Martin á Cote-d’Azure í Frakklandi. Þriðja verkið er Nest (Hreiður) eftir Rintala Eggertsson arkitekta, sem er stofnsett í Osló af þeim Sami Rintala frá Finnlandi og Degi Eggertssyni frá Íslandi. Hreiður er eins konar kerfi húshluta af forsmíðuðum einingum sem þróað var árið 2016 til að koma til móts við vaxandi straum flóttamanna með neyðarbústöðum af almennilegum gæðum fyrir fjölskyldur í hörmulegum aðstæðum.
Listfræðsluverkefni fyrir grunnskólanemendur
Áherslan á fagurfræðilegan þátt viðfangsefnisins er undirstrikuð með samspili þrívíðu innsetninganna við nýja myndlist eftir þrjá samtíma listamenn. Það eru María Sjöfn Dupuis Davíðsdóttir með Vatnaverk (2020), Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir með My hand, your hand (2019), og Arnór Kári Egilsson með Glit (2020).
Með sýningunni hefur verið þróað listfræðsluverkefni fyrir grunnskólanemendur á miðstigi og nemendur á listnámsbraut Menntaskólans á Egilsstöðum. Verkefnið er í boði BRAS, menningarhátið barna og ungmenna á Austurlandi, og List fyrir alla.
Sem fyrr segir verður sýningin opnuð 26. september 2020, kl. 14:00 – 18:00. Léttar veitingar og stuttar leiðsagnir verða í boði yfir daginn. Sýningargestir eru beðnir um að virða eins metra regluna og að spritta hendur við inngang. Vegna takmarkana geta aðeins um 25 gestir verið inni í salnum í einu og þess vegna er opnunartíminn lengri yfir daginn.
Sýningin stendur frá 26. september til 20. desember 2020.
Opnunartími: Mið – lau kl. 12:00 – 16:00. Lokað sun – þri.