Egilsstaðir: Söluráðgjafi í verslun
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum aðila til þess að bætast í hóp öflugra starfsmanna Húsasmiðjunnar á Egilsstöðum. Um er að ræða fjölbreytt framtíðarstarf söluráðgjafa í rafmagns- og lagnadeild. Við leitum að aðila sem hefur jákvætt hugarfar og metnað fyrir því að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala, afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
- Móttaka vöru, tiltekt og afgreiðsla pantana
- Önnur tilfallandi verslunarstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð, skipulögð og vönduð vinnubrögð
- Stundvísi, reglusemi og snyrtimennska
- Sterk öryggisvitund
- Almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
- Aðgangur að fjölbreyttri fræðslu
- Afsláttarkjör í verslunum Húsasmiðjunnar, Ískrafts og Blómavals
- Aðgangur að orlofshúsum
- Styrkur til heilsueflingar
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Jóhann Páll Svavarsson rekstarstjóri á [email protected]
Hvetjum öll áhugasöm til þess að sækja um, óháð kyni.
Unnið er úr umsóknum um leið og þær berast.
Gildin okkar eru: Áreiðanleiki – Þjónustulund – Þekking
Hægt er að sækja um á ráðningarvef Húsasmiðjunnar: husa.is/laus-storf/