Vélvirkjar, járniðnaðar- og suðumenn

VHE leitar að vélvirkjum, járniðnaðarmönnum og suðumönnum til framtíðarstarfa hjá fyrirtækinu á Reyðarfirði. Upplýsingar gefur Sigurjón Baldursson, í síma 843-8883, eða [email protected].

VHE er fjölskyldufyrirtæki, stofnað 1971 og hefur starfsstöðvar í Hafnarfirði, á Egilsstöðum og á Reyðarfirði. Hjá fyrirtækinu starfa um 350 manns og það er framsækið fyrirtæki á véla- og
mannvirkjasviði, boðið er upp á ítarlegar lausnir í hönnun, framleiðslu og þjónustu fyrir viðskiptavini okkar, má þar nefna sérhæfðar lausnir fyrir stóriðju, iðnað, orkufyrirtæki og mannvirkjagerð.

Umsóknir sendist á www.vhe.is eða í tölvupósti [email protected].