Náttúrugripasafnið í Neskaupstað

Íslensk náttúra í nærmynd í safnahúsinu.

Safnið hefur að geyma flesta íslenska fugla auk fjölda flækinga og ágætu fiskasafni með ýmsum sjaldséðum fiskum. Einnig eru í safninu ýmsir gripir af sjávarbotni, þar á meðal mjög gott safn skeldýra. Villtu íslensku spendýrin eiga sína fulltrúa á safninu og þar er einnig mjög gott steinasafn. Þá varðveitir safnið austfirskt plöntuvísindasafn og skordýrasafn. 

Náttúrugripasafnið í Neskaupstað var stofnað 1965. Upphafsmaður að stofnun safnsins var Bjarni Þórðarson þáverandi bæjarstjóri. Hjörleifur Guttormsson líffræðingur var fyrsti forstöðumaður safnsins og vann að uppsetningu þess. Fyrsta sýningin var opnuð í Gagnfræðaskólanum í Neskaupstað sumarið 1970.

Unnið hefur verið að umhverfisrannsóknum á vegum Náttúrustofu Austurlands, m.a. á hálendinu Norðaustan Vatnajökuls vegna virkjanaframkvæmda og annast stofan eftirlit og ráðgjöf vegna mannvirkjagerðar fyrir Náttúruvernd ríkisins. Árið 2002 tók Náttúrustofa Austurlands við rekstri safnsins af Fjarðabyggð.