Verkefnastjóri brothættra byggða

Hefur þú brennandi áhuga á uppbyggingu samfélaga? 

Við auglýsum eftir sérfræðingi til að leiða verkefni brothættra byggða á Stöðvarfirði. Verkefnið er fjölbreytt og tengist byggðaþróun í víðum skilningi. Verkefnið er hluti af verkefnum Brothættra byggða og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Austurbrúar og Fjarðabyggðar. Í starfinu felst m.a. stefnumótun, umsjón og framkvæmd verkefna, upplýsingamiðlun, ráðgjöf
og samskipti við hagaðila.

Um fullt starf er að ræða með starfsstöð á Stöðvarfirði og þarf viðkomandi að
geta hafið störf sem fyrst.

Við leitum að einstaklingi sem er jákvæður og hvetjandi, lausnamiðaður, skipulagður og á auðvelt með að vinna með fólki, leiðbeina, draga saman upplýsingar og skapa yfirsýn.

Ef þú vilt vinna á faglega krefjandi og skemmtilegum vinnustað, þar sem hvatinn er efling samfélagsins á Stöðvarfirði þá er þetta starfið fyrir þig!

Helstu verkefni og ábyrgð
Fylgja eftir ákvörðunum verkefnisstjórnar til eflingar byggðar og mannlífs á Stöðvarfirði.
Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum á svæðinu.
Miðlun upplýsinga og skýrslugerð til samstarfsaðila og íbúa.
Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í byggðalaginu.
Önnur verkefni í samstarfi við sveitarfélagið samkvæmt samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í verkefninu. Háskólamenntun er kostur.
Haldbær starfsreynsla og reynsla af verkefnastjórnun.
Þekking, skilningur og reynsla af byggðamálum mikilvæg.
Mjög góð tölvu- og tæknifærni.
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og mjög góð færni í mannlegum samskiptum.
Fríðindi í starfi
Heimavinnudagar
Stytting vinnuviku
Jafnlaunavottun
Sveigjanlegt starfsumhverfi
Góður aðbúnaður

Austurbrú er þverfaglegur og krefjandi vinnustaður sem er leiðandi í stoðþjónustu á Austurlandi hvað varðar atvinnulíf, menntun, byggðaþróun og menningu. Starfsstöðvarnar bjóða góða aðstöðu og aðbúnað.
Austurbrú hefur hlotið jafnlaunavottun og er EQM vottuð stofnun á sviði fræðslumála.

Spurningar varðandi starfið sendist til yfirverkefnastjóra Tinnu Halldórsdóttur | [email protected] | 470-3802

Sæktu um starfið hér

Secret Link