Þræðir

 

Áttunda BRAS-hátíðin fór fram árið 2025 og að venju var fjölbreytt dagskrá í boði fyrir börn og ungmenni. Hátíðin var samstarfsverkefni fjölmargra aðila á Austurlandi – menningarmiðstöðva, skóla, stofnana, sveitarfélaga og Listar fyrir alla.

Nafn hátíðarinnar var ÞRÆÐIR sem skírskotar í að þræðir menninga og lista liggur í gegnum allt okkar daglegt líf.

Stýrihópur BRAS sá um skipulag hátíðarinnar og menningarstofnanir buðu verkefni inn í alla grunnskóla. Fjölmargir opnir viðburðir fóru einnig fram á meðan hátíðinni stóð. Árið 2025 bættist meðal annars við samstarf við FabLab Austurland, UngRiff, Sögu Unnsteins og fleiri aðila.

Sérstaka athygli vöktu viðburðir helgina 20.–21. september þegar listahópurinn Dans Afríka kom í heimsókn og tók þátt í dagskrá hátíðarinnar.

 

 

Secret Link