Tónlistarkennari
Tónlistarskólinn á Egilsstöðum óskar eftir tónlistarkennara í 40-80% starf frá og með 1. ágúst 2022.
Ráðning er til eins árs með góðum möguleika á framtíðarstarfi.
Um er að ræða 40-50% starf við kennslu á strengahljóðfæri, en möguleiki er á hærra starfshlutfalli fyrir fjölhæfan kennara.
Starf Tónlistarskólans á Egilsstöðum er blómlegt, í góðum tengslum við Egilsstaðaskóla og meirihluti kennslunnar fer fram á skólatíma grunnskólanemenda.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kennsla á fiðlu á öllum námsstigum að framhaldsprófi
- Kennsla á önnur strengjahljóðfæri eftir þörfum
- Önnur kennsla í samræmi við hæfni og áhuga umsækjanda
Menntunar- og hæfniskröfur
- Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð tónlistarmenntun sem nýtist í starfi
- Færni í fiðlukennslu á öllum námsstigum að framhaldsprófi
- Færni í kennslu annarra strengjagljóðfæra æskileg
- Færni í mannlegum samskiptum
- Íslenskukunnátta eða vilji til þess að læra íslensku
Allar helstu upplýsingar um Tónlistarskólann á Egilsstöðum má finna á heimasíðu skólans: https://www.tonegilsstodum.fljotsdalsherad.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsingar veitir Sóley Þrastardóttir, skólastjóri, í síma 470 0570 eða á netfanginu [email protected]
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Sakarvottorðs er krafist í ráðninarferlinu.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Umsóknarfrestur er til 8. maí 2022 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Tónlistarkennari | Tónlistarskólinn á Egilsstöðum | Hlutastarf Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)