Sumarstarf námsmanns á velferðarsviði Múlaþings Egilsstöðum
Velferðarsvið Múlaþings vill ráða duglegan og áhugasaman námsmann til sumarstarfa. Starfið getur falið í sér vinnu með fólk í viðkvæmri stöðu undir handleiðslu reyndra sérfræðinga sviðsins og felur í sér vinnu við fjárhagsaðstoð, félagslega ráðgjöf, virkniúrræði og fleiri verkefni sem starfsmanni verða falin. Um fullt starf er að ræða og er starfstími samkomulagsatriði.
Starfið er frábært tækifæri fyrir nemendur á háskólastigi sem hafa áhuga á að kynnast starfsemi sem fer fram hjá sveitarfélögum og opinberri stjórnsýslu.
Öll sem stunda nám í félagsráðgjöf, þroskaþjálfun, iðjuþjálfun, sálfræði, uppeldisfræði og öðrum hliðstæðum greinum eru sérstaklega hvött til að sækja um.
Næsti yfirmaður er sviðstjóri velferðar hjá Múlaþingi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Krafa að viðkomandi sé í námi í félagsráðgjöf, þroskaþjálfun, iðjuþjálfun, sálfræði, uppeldisfræði eða sambærilegum greinum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð alhliða tölvukunnátta.
- Góð færni í mannlegum samskiptun.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Hreint sakarvottorð.
- Bílpróf.