Starfsmaður í dagþjónustu og í eldhúsi
Um er að ræða 80%-100% framtíðarstarf í Hlymsdölum á Egilsstöðum. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Markmið starfsins er að veita notendum í dagþjonustu félagslegan og persónulegan stuðning auk eldhússtarfa.
Félagsmiðstöðin Hlymsdalir er til húsa ivð Miðvang 6, Egilsstöðum. Í Hlymsdölum er starfrækt félagsstarf fyrir eldri borgara skv. lögum um málefni aldraðra.
Næsti yfirmaður er forstöðumaður Hlymsdala.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Undirbúningur og bakstur fyrir kaffisölu
- Þrif í eldhúsi
- Veita dagþjónustunotendum félagslegan og persónulegan stuðning
- Útkeyrsla á mat í hádegi
Menntunar-og hæfniskröfur
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Þekking á málaflokki aldraða er kostur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, hæfileiki til samvinnu, sveigjanleika og tillittsemi
- Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Þekking og reynsla sem nýtist í starfi er kostur
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Hlymsdala Múlaþings, sími 470 0798 eða [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 19. desember og hægt er að sækja um í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Starfsmaður í dagþjónustu og í eldhúsi | Hlymsdalir Egilsstöðum (alfred.is).
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýs9ingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is. Tekið er mið af jafnréttisáætlun við ráðningar í störf hjá sveitarfélaginu.
Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir.