Starfskraftur við þjónustumiðstöð á Egilsstöðum
Þjónustumiðstöð Múlaþings leitar að starfskrafti í 100% framtíðarstarf á Egilsstöðum.
Starfið er fjölbreytt og við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Næsti yfirmaður er verkstjóri þjónustumiðstöðvar á Egilsstöðum og Borgarfirði eystri.
Starfið er laust nú þegar, en hægt að semja um hvenær störf hefjast.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðhald eigna sveitarfélagsins.
- Viðhald gatna, gangstétta og stíga.
- Snjómokstur og hálkuvarnir.
- Viðhald á opnum svæðum.
- Önnur tilfallandi störf í þjónustumiðstöð.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Bílpróf skilyrði.
- Vinnuvélaréttindi er kostur eða vera reiðubúinn til að fara á námskeið til öflunar slíkra réttinda.
- Reynsla af viðhaldi og verklegum framkvæmdum.
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
- Rík þjónustulund og góð framkoma.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.