Starfsfólk á íþróttavöllum
Sveitarfélagið Múlaþing auglýsir eftir starfsfólki á íþróttavelli á Egilsstöðum og í Fellabæ sumarið 2023.
Starfsfólk sinnir umhirðu, þrifum og viðhaldi íþróttavalla, vallarhúsa, áhorfendasvæða og umhverfis þeirra yfir sumarið. Unnið er samkvæmt viðhalds- g umhirðuáætlun fyrir íþróttavelli og vallarhús.
Starfsfólk starfar undir stjórn vallarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umhirða íþróttavalla, t.a.m. sláttur, merking valla, umhirða hlaupabrauta o.fl.
- Þrif á klefum og öðru húsnæði
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Bílpróf
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Heiðarleiki, stundvísi og umburðarlyndi
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og samskiptahæfni
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og vilji til að taka þátt í breytingum
- Vinnuvélaréttindi kostur
Allir umsækjendur þurfa ða gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10. gr. laga nr.70/2007 og uppfylla þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr. sömu laga.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
Öllum umsóknum skal fylgja rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Guðjón Hilmarsson, í síma 899 1948 og á netfanginu [email protected].
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2023 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Starfsfólk á íþróttavöllum | Fjölskyldusvið (alfred.is) eða á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „laus störf“.