Starf við skjalafrágang – Egilsstaðir
Leitað er að einstaklingi, 20 ára og eldri sem hefur áhuga og færni í skjalavinnslu. Tilvalið sem sumarstarf fyrir háskólanema en getur líka verið verkefni til aðeins lengri tíma.
Skipulagshæfileikar, nákvæmni og öguð vinnubrögð eru nauðsynleg. Kostur er að viðkomandi hafi lokið a.m.k. einu ári í háskóla.
Verkefnið felst í frágangi á eldri skjölum fyrir skil á Héraðsskjalasafnið sem og frágangi og útprentun á nýrri skjölum stjórnsýslunnar.
Umsóknir og fyrirspurnir berist til Hrundar Erlu Guðmundsdóttur skjalastjóra á [email protected] fyrir 6. maí.