Slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður

Slökkvilið Fjarðabyggðar auglýsir laust starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns til starfa á slökkvistöðinni að Hrauni á Reyðarfirði. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu við sjúkraflutninga og slökkvistörf. Við leitum að áhugasömum aðila sem leggur metnað í faglegt og gott starf þar sem traust og samheldni ríkir.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Slökkvistörf
  • Sjúkraflutningar
  • Þátttaka í æfingum og þjálfun annarra viðbragðsaðila
  • Umhirðu húss, tækja og búnaðar og annarri þeirri vinnu er fellur til á slökkvistöð

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 8.gr. reglugerðar nr. 792/2001, m.a.
  • Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd
  • Hafa að lokinni reynsluráðningu aukin ökuréttindi til að stjórna vörubifreið
  • Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun (stúdentspróf) og reynslu
  • Standast læknisskoðun og þrekpróf
  • Hafa jákvætt hugarfar
  • Hafa framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að hafa á sér gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist af starfinu.
  • Menntun og/eða reynsla af starfi slökkviliðs- og/eða sjúkraflutningamanna er kostur

Fríðindi í starfi

  • Aðgangur að líkamsrækt
  • Tómstunda- og líkamsræktarstyrkur

Umsókn þarf að fylgja: prófskírteini, læknisvottorð, ökuferilsskrá, ljósrit af ökuskírteini, almenn ferilsskrá og kynningarbréf. Umsækjendur eru beðnir um að kynna sér inntökuskilyrði í starf í slökkviliðinu og á síðunni www.fjardabyggd.is/media/inntokuskilyrdi1.pdf. Kröfur um viðbragð setja skorður á búsetu innan ákveðinnar fjarlægðar frá slökkvistöð.

Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við Landsamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem allra fyrst.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á ráðningarvef Fjarðabyggðar www.starf.fjardabyggd.is.

Umsóknarfrestur er til og með 28. ágúst 2023.

Nánari upplýsingar veitir Júlíus Albert Albertsson aðstoðarslökkviliðssjtóri, [email protected] eða í síma 470 9081.

Secret Link