Skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Laus er staða skólastjóra við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Leitað er að kraftmiklum og lausnamiðuðum leiðtoga sem er tilbúinn að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í eflingu skólasamfélagsins í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á rekstri skólans og þróunarvinnu
- Fagleg forysta, dagleg stjórnun og samhæfing starfskrafta skólans
- Víðtækt samstarf við stofnanir, heimili og samfélag
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjandi skal hafa leyfisbréf til kennslu í grunnskóla
- Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er æskileg
- Viðbótarmenntun í stjórnun er æskileg
- Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði
Skólastjóri skal hafa metnaðarfulla framtíðarsýn í skólamálum og vera tilbúinn að leiða faglegt og félagslegt starf innanskólans og stuðla að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins í Fjarðabyggð.
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru tæplega 110 nemendur. Skólinn er staðsettur í sama húsnæði og leikskólinn, tónlistarskólinn og bókasafnið. Í skólanum ríkir góður starfandi, mikið og gott samstarf er á milli stofnana og öflug foreldrafélag styður þétt við skólastarfið. Einkennisorð skólans eru „ánægja, ábyrgð og árangur“. Skólinn er heilsueflandi skóli og Grænfána skóli. Skólinn nýtir uppeldisaðferðirnar Uppeldi til ábyrgðar og ART og tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans: www.fask.is
Staðan er laus frá 1. ágúst 2022. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 13. apríl og skulu umsóknir berast rafrænt á [email protected] eða í merktu umslagi á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði.
Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, upplýsingar um frumkvæði á sviði fræðslumála, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.
Nánari upplysingar veitir Þóroddur Helgason, fræðslustjóri, í síma 860 8331, netfang: [email protected]