Skjala- og þjónustufulltrúi

Ert þú dugmikill einstaklingur með reynslu af almennum skrifstofustörfum s.s. ritvinnslu, símavörslu, skjalavörslu, skýrslugerð og undirbúning og móttöku vegna funda og námskeiða?

Vilt þú taka þátt í starfi öflugs og samheldins hóps starfsmanna fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar? Þá erum við að leita að þér!

Fjarðabyggð er öflugt, vaxandi samfélag sem leggur mikla áherslu á velferð og málefni allra íbúa. Á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar er lögð áhersla á þverfaglega vinnu og stuðning starfsmanna í teymisstarfi við úrlausn margþættra verkefna sem tengjast stuðningsþörfum ólíkra einstaklinga með það markmið að efla lífsgæði og hagsæld þeirra.

Starfslýsing: skjala- og þjónustufulltrúi heyrir undir sviðstjóra fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar. Starfsmaður sinnir móttöku þjónustuþega ásamt almennum skrifstofustörfum s.s. ritvinnslu, símavörslu, skjalavörslu, skýrslugerð og undirbúning og móttöku vegna funda og námskeiða.

Um tímabundna ráðningu er að ræða í 6-12 mánuði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stoðþjónusta við starfsmenn, stjórnendur og ráðgjafa fjölskyldusviðs
  • Annast póst og sér um innkaup á nauðsynjum í samráði við sviðsstjóra fjölskyldusviðs
  • Umsjón með móttöku, skráningu og vísan skjala á ábyrgðaraðila í skjalakerfi
  • Tekur við símtölum þjónustunotenda fjölskyldusviðs, aðstoðar og leiðbeinir þeim skv. Þjónustulýsingu
  • Stoðþjónusta – ljósritun, símaþjónusta, pöntun og bókun á flugi o.fl. í samstarfi við afgreiðslufulltrúa á stjórnsýslu- og þjónustusviði
  • Afleysing vegna verkefna er heyra undir starf afgreiðslufulltrúa og símavarðar, þ.m.t. undirbúningur funda, opnun og flokkun á pósti o.fl.
  • Utanumhald og skipulag vegna námskeiða fyrir skólastofnanir Fjarðabyggðar
  • Sér um að rita fundi að beiðni sviðstjóra

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Framhaldsskólamenntun
  • Reynsla af þjónustu- og skrifstofustörfum
  • Reynsla og þekking í notkun upplýsingatæknikerfa
  • Góð íslenska og íslensk ritfærni, önnur tungumálakunnátta er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulipurð
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamning íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags

Frekari upplýsingar veitir Laufey Þórðardóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs. [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 13. desember 2022 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins https://starf.fjardabyggd.is/storf/viewjobonweb.aspx?jobid=2510

Secret Link