Skíðamiðstöðin Oddskarði óskar eftir lyftuverði

LYFTUVERÐIR Í SKÍÐAMIÐSTÖÐINNI Í ODDSSKARÐI
Skíðamiðstöðin Oddskarði óskar eftir að ráða til sín lyftuverði skíðaveturinn 2020-2021. Í boði eru 60-80% störf sem og hlutastörf sem henta t.d. vel með skóla.

Helstu verkefni:

Lyftuvarsla, uppsetning í byrjun dags og frágangur í lok dags
Aðstoða gesti við að komast í og úr skíðalyftum ásamt stjórnun á skíðalyftum
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:

Umsækjendur þurfa að hafa góða þjónustulund,
Geta unnið sjálfstætt og undir álagi.
Hafa gaman af útiveru.
Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði í starfi og sé tilbúinn til að takast á við skemmtilegt starf
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Starfslýsing Lyftuvarða

Leitað er að einstaklingum með ríka þjónustulund og hæfni til að vinna undir álagi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag . Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásdís Sigurðardóttir forstöðumaður, í síma 898-3310 eða með tölvupósti [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2020

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is