Rekstur birgðahalds og skráningar tæknigagna – Egilsstaðir

Lagerumsjón og gagnaskráning Egilsstöðum

RARIK óskar eftir að ráða öflugan starfsmann til þess að sjá um daglegan rekstur
birgðahalds og skráningar tæknigagna á starfsstöð fyrirtækisins á Egilsstöðum.
Gert er ráð fyrir að verkefnin skiptist um það bil til helminga. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
Helstu verkefni
• Móttaka og skráning birgða
• Afgreiðsla lagerefnis
• Umsjón með birgðum
• Skráning tæknigagna
Hæfniskröfur
• Góð tölvukunnátta
• Nákvæmni og skipuleg vinnubrögð
• Þekking á rafveituefni er kostur
• Frumkvæði og góð samskiptahæfni

Nánari upplýsingar veitir Úlfar Ingvarsson Innkaupastjóri eða starfsmannastjóri
RARIK í síma 528 9000. Umsóknarfrestur er til 11. júní 2019 og skal skila umsóknum með ferilskrá á www.rarik.is/atvinna.

RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa raforku auk þess að afla, dreifa og annast sölu á heitu vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200, aðalskrifstofa er í Reykjavík og um 20 starfsstöðvar eru dreifðar vítt og breitt um landið.

Secret Link