PISA – fyrirlögn á Austurlandi
Mennta- og barnamálaráðuneytið leitar að starfsfólki til að vinna við PISA (Programme for International Student Assessment), alþjóðlega menntarannsókn á vegum OECD.
Verkefnið felur í sér fyrirlögn í 10. bekkjum grunnskóla á Austur- og Norðausturlandi. Unnið verður á tímabilinu 17. mars til 10. apríl og um verktakavinnu er að ræða.
Verkefnið krefst öryggis í framkomu, reynslu af starfi með börnum eða unglingum og góðrar íslenskukunnáttu. Umsækjendur þurfa að hafa ökuréttindi. Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar. Fyrir nánari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Gunnhildi Steinarsdóttur í gegnum [email protected] eða í síma 545 9500.