Matreiðslumaður/ Matsveinn/ Kokkur – Seyðisfjörður
Matreiðslumaður/matsveinn, vanur starfsmaður í eldhúsi – Kaffi Lára – El Grilló bar
El Grilló/Kaffi Lára er veitingastaður/bar staðsettur á Seyðisfirði. Seyðisfjörður er fallegur lítill bær á Austurlandi, fullur af sögu, listsköpun, vinalegu fólki og fallegri náttúru. Við erum lítið fjölskyldufyrirtæki sem leggjum metnað í góða samvinnu og vellíðan á vinnustaðnum.
Við leitum eftir einstaklingum sem vilja vera hluti af El Grilló-fjölskyldunni og leggja sitt af mörkum í samvinnu og samheldni hópsins.
Eldhús, 100% starf, unnið á 2-2-3 „kokkavöktum“: Við leitum að matreiðslumanni/matsveini eða starfsmanni í eldhús með reynslu af eldhússtöfum. Viðkomandi þarf að geta unnið undir álagi ásamt því að sýna sjálfstæði, samviskusemi og hreinlæti.
- Laun samkvæmt kjarasamningum
- Húsnæði og góð aðstaða í boði á staðnum.
Starfið sem um ræðir er frá: sem fyrst – 31. október 2020.
Umsóknir sendast á [email protected], vinsamlegast látið fylgja með uppfærða ferilskrá og persónulegt kynningarbréf
Umsóknarfrestur til 22. júlí 2020.